skyrteini

TVÆR STJÖRNUR | ANDLEGUR EINKAÞJÁLFARI | REIKI HEILUN

HVAÐ GETUR REIKI-HEILUN GERT FYRIR OKKUR?

STYRKIR

Líkaminn nær sér skjótar eftir veikindi. Hreinsun úrgangsefna verður hraðari, sérstaklega fyrir þá sem eru að hætta að reykja. Getur virkað á ofnæmi í nokkrum tilfellum en munið ávallt að Reiki-heilun kemur ekki í staðinn fyrir lækna eða lyf.

BETRI LÍÐAN

Virkar vel á alla verki í líkamanum sem og andlega vanlíðan. Virkar á ónot, svo sem svefntruflanir og ójafnvægi. Vandamál eins og t.d. Stress – Svefnleysi – Þunglyndi – Höfðuverk – Kvíði – Vöðvaspenna – Vöðvameiðsli – Tognun – Liðverkir

NÁTTÚRULEGT

Veitt okkur nátturulegt heilbrigði fyrir líkama og sál og stutt líkamann í sjálfsheilun og gefið okkur nýja og kröftuga orku

HEILUN ER FRÁBÆR LEIÐ TIL ÞESS AÐ ÖÐLAST RÓ Í HJARTA

HVER ER ÉG ?

SVAVA BJARNA / SJÚKRALIÐI, REIKI MEISTARI & HEILARI

Ég er fædd 1964 og uppalin í Kópavogi en bjó lengst af á Höfn í Hornafirði og nokkur á í Danmörku. Á Höfn starfaði ég sem félagi í sálarrannsóknarfélaginu Stjörnunni þar sem við stóðum fyrir komu ýmissa miðla á staðinn og fengum til okkar fólk til að halda námskeið sem allt snerist um vinnu á andlega sviðinu og fyrirbærum hverskonar og í Danmörku var ég með eigin vinnustofu en þar var ég aðallega með heilun og heilunarnudd þar sem ég notast við heita steina í nuddinu. Allt sem varðar óhefðbundnar lækningar, sjálfshjálp og sjálfsheilun vekur áhuga minn og er ég stöðugt að bæta við mig á því sviði. Ég vinn með Reiki-Heilun, kristalla og liti orkustöðvanna en nánari upplýsingar og fróðleik um orkustöðvarnar er að finna á síðunni undir fróðleikur. Ég starfa sem sjúkraliði og andlegur einkaþjálfari og er með vinnustofu heima hjá mér í Bröttuhlíð 1b í Hveragerði.

Orkustöðvajöfnun er góð fyrir alla, börn og fullorðna. Tími í heilun gefur þér ró og betri svefn.

FRÓÐLEIKUR

HAFA SAMBAND

Tímabókanir eða fyrirspurnir ekki hika við að hafa samband.