ANDLEG EINKAÞJÁLFUN

HVAÐ ER ANDLEG EINKAÞJÁLFUN?

Andleg einkaþjálfun er jafn mikilvæg fyrir þig eins og ef þú færð þér einkaþjálfara til að þjálfa líkama þinn.

Hefur þú pælt í því?

Þú ferð í ræktina og tekur leiðbeiningum frá þeim sem kann á græjurnar í salnum og hann segir þér hvað þú ert að fara að gera og hvernig þú átt að gera þær æfingar sem fylgja hverju tæki fyrir sig.

Andlegur einkaþjálfari kennir þér á sjálfan þig.

Það sem Andlegur einkaþjálfari gerir fyrir þig, er að hann færir þér réttu verkfærin í hendurnar og leiðir þig áfram í skoðunarferð um huga þinn sem gera það að verkum að þú ferð að vinna með sjálfan þig, kafa djúpt í undirmeðvitundina og þar getur þú fundið allskonar atriði sem þú vissir jafnvel ekki að leyndust í huga þínum.

Þessi atriði geta verið að orsaka vanlíðan, kvíða, þunglyndi og streitu sem eru jafnvel farin að veita þér erfiðleikum í daglegu lífi án þess að þú gerir þér að fullu grein fyrir því. Líkamlegir kvillar gera vart við sig og þú skilur í raun ekki hvað er að valda þeim og þessari miklu vanlíðan sem hrjáir þig.

Andleg einkaþjálfun er 12 mánaða námskeið þar sem þú færð 60 mínútna einkatíma hjá Svövu í hverjum mánuði. Þú færð upplýsingar um bækur, kvikmyndir og fyrirlestra sem efla vitund þína um það hvernig þú getur orðið besta útgáfan af sjálfum þér.

Námið snýst um verkefna vinnu þar sem

Þú færð aukið sjálfstraust sem leiðir til hugarfarsbreytinga

Þú lærir að vinna með og vera í núinu (núvitund)

Þú öðlast meiri gleði í daglegu lífi

Þú lærir að standa með sjálfum þér

Þú lærir að fyrirgefa sjálfum þér og öðrum

Þú finnur þinn innri kjarna

Þú nærð betri samskiptum í daglegu lífi

Þú nærð innri hugarró og þú lærir að vinna með orkustöðvarnar þínar

Þú lærir að lifa með sjálfum þér í gleði og verður þinn besti vinur/vinkona

Ef þetta námskeið talar til þín þá ertu á réttum stað og ættir að hafa samband við Svövu og fá nánari upplýsingar um þetta dásamlega námskeið sem þér stendur til boða