Svava Bjarna sjúkraliði og heilari
Ég er andlegur einkaþjálfari, Reikimeistari og geðsjúkraliði.
Ég leiði fólk inn á veg meðvitundar þar sem unnið er með innri ró og sjálfstyrkingu. Í starfi mínu sameina ég Andlega einkaþjálfun, hugleiðslu og andlega leiðsögn. Með því hjálpa ég fólki að tengjast sjálfu sér á djúpan og auðskiljanlegan hátt. Ég vinn út frá því að hver einstaklingur býr yfir eigin styrk, innsæi og getu til að skapa breytingar í lífi sínu. Ég nálgast mína skjólstæðinga með nærveru og skilningi og styð sérstaklega við konur sem vilja losa sig við streitu, efla sjálfstraustið og finna meira jafnvægi og flæði í daglegu lífi. Ég er með aðstöðu í Hveragerði þar sem ég held námskeið reglulega.
